Sóttar pantanir:
Nítjánda tekur sér 1-2 virka daga til afgreiðslu sóttra pantana. Kaupanda berst staðfesting í tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar í verslun. Viðskiptavinur, sem pantað hefur í gegnum vefverslun Nítjándu en velur að sækja pöntun í verslun, skal framvísa staðfestingu á vörukaupum, s.s. rafrænum reikningi, þegar hann sækir pöntunina.
Sendar pantanir:
Nítjánda nýtir sér þjónustu Dropp til að senda vörur á skilgreindan afhendingarstað. Velji viðskiptavinur að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingarstað tekur Nítjánda sér 1-2 virka daga að koma vöru til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. Gjaldskrá Dropp má nálgast hér: https://www.dropp.is/verdskra
Dropp er dreifingaraðili Nítjándu og sér um sendingu á keyptum vörum til viðskiptavina. Um afhendingu vörunnar gilda því afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp. Eingöngu er hægt að fá vörur Nítjándu sendar innan Íslands. Nítjánda áskilur sér rétt til að breyta skilmálum er varða verð, afhendingar- og sendingarmáta, án fyrirvara.